CORVERIA

Um Corveria

Stafræn vörusmiðja á Íslandi.

Sagan okkar

Corveria byrjaði á einfaldri spurningu: af hverju mistekst svá mörgum stafrænum vörum að skila árangri? Ekki vegna þess að hugmyndirnar eru slæmar, heldur vegna þess að eitthvað tapast á milli framtíðarsýnar og endanlegrar vöru.

Við stofnuðum Corveria til að brúa það bil. Við erum staðsett í Reykjavík og vinnum á alþjóðavísu.

Hvernig við vinnum

Við gerum ekki langa greiningarfasa eða endalausa vinnustofur. Þess í stað spyrjum við skarpra spurninga strax í upphafi. Hvað þarf fyrirtækið þitt í raun? Hver er markhópurinn? Hvernig lítur árangur út? Þessi skýrleiki er það sem gerir okkur kleift að vinna hratt án þess að byggja rangt.

Allar vörur sem við afhendum eru byggðar á traustum grunni. Góður kóði, rétt öryggi, gagnavernd og persónuvernd frá fyrsta degi. Fagmennska sem margir sleppa þegar þir vinna hratt. Við gerum hvor tveggja.

Þegar við tökum að okkur verkefni, komum við fram við það eins og okkar eigin. Við viljum skilja markmið þitt vel svo við getum byggt vöruna sem þú þarft.

Það sem við trúum á

Taktu stökkið.

Stærsta áhættan er ekki að setja eitthvað í loftið of snemma. Hún er að festast við 98% og ná aldrei markinu.

Við hjálpum viðskiptavinum okkar að taka fyrsta skrefið, vel vitandi um að opnunardagurinn er ekki marklínan. Hann er upphafið. Varan heldur áfram að batna þaðan.

Byggðu eitthvað sem fyllir þig stolti.

Góð vara á að líða eins og að kaupa frábæran bíl. Hún lítur vel út, hún keyrir vel og hún kemur þér þangað sem þú ert að fara.

Okkur er ánnt um þá tilfinningu. Ef þú ert ekki stolt af að sýna hana, þá höfum við ekki staðið okkur.

Skilðu áður en þú byggir.

Viðskiptavinur gæti komið til okkar með markkaðssíðu í huga. Við spyrjum: hvað á að gerast þegar einhver heimsækir hana? Hvað ertu að selja? Hvaða mynd viltu gefa af þér?

Stundum er svarið hrein fimm síðna vefsíða. Stundum er það heill vettvangur með notendareikningum, stjórnborðum og tengingum.

Þinn árangur er okkar árangur.

Þegar viðskiptavinir okkar ná markmiðum sínum, finnum við fyrir því. Þess vegna erum við til staðar eftir opnun, þess vegna fylgjum við eftir, og þess vegna byggjum við til lengri tíma.